Í sýningu
Lápur, Skrápur og jólaskapið
Stórskemmtilegt jólaleikrit eftir Snæbjörn Ragnarsson um tröllabræðurna Láp og Skráp sem þurfa að finna jólaskapið áður en dagur rennur og þeir verða að steini.
Leitin ber tröllastrákana til Sunnu litlu mannabarns sem ákveður að hjálpa þeim en þau Grýla, Gáttaþefur og Leiðindaskjóða koma einnig við sögu.
Sýningartími er um 50 mínútur.
Sýningar 6.-15. desember
Miðaverð
3.000 kr.
Fréttir
Ný stjórn LL kosin á aðalfundi
Aðalfundur Litla leikklúbbsins var haldinn í Edinborgarhúsinu þriðjudaginn 19. apríl 2022. Formaður síðustu ár hefur verið Sunna Einarsdóttir en vegna flutninga yfirgefur hún nú stjórnina. Eru henni færðar bestu þakkir fyrir vel unnin störf, ekki síst við gerð...